Skilmálar & Afhending

Upplýsingar um fyrirtækið

Gudbjorgarna (Guðbjörg Árnadóttir 291181-3179) /Sigluvogur 12, 104 Reykjavík, s 8970126. arnadottirgugga@gmail.com

Gudbjorgarna áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest.

Viðskiptavinur getur fengið vörurnar sendar í pósti eða sótt þær á hárgreiðslustofuna Hárhornið, Hverfisgötu 117 á fyrirfram gefnum tímum.

  1. Sending

Frí heimsending er öllum vörum og eru þær sendar heim að dyrum með Íslandspósti eða á næsta pósthús. Sé ekki unnt að taka við sendingunni þarf að sækja hana á næsta pósthús.

  1. Sækja
    Veljir þú að sækja pöntun frekar en að fá hana senda getur afgreiðsla tekið 1-2 virka daga. Þú færð tölvupóst um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar. 

Afhending pantana fer fram á hárgreiðslustofunni Hárhorninu, Hverfisgötu 117 105 Reykjavík. Pantanir eru afhentar á mánudögum og fimmtudögum. 

Verð og verðbreytingar

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um villur. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar. Gudbjorgarna áskilur sér rétt til að fella niður pantanir og endurgreiða séu villur í verðum þegar pantað er.

Að skipta og skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því gefnu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Skil geta farið þannig fram að kaupandi skili vöru á Hárhornið í Reykjavík, eða sendi okkur vöruna með pósti á eigin kostnað.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðslu sé hennar krafist.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. 


Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.